Buddurnar

24.04.2008 20:29:22 / Buddurnar

Gledilegt Sumar

Happy Summer!

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 16:36:31 / Buddurnar

Mars Afmaeli

Hae  Hae....

Tad eiga svo margir afmaeli i Mars...eg man aldrei hver a afmaeli hvada dag...svo eg segi bara til ham med afmaelid Marsarar.....og Torunn til hamingju med afmaelid i DAG!!!:haha::haha::haha:

Stella Gella:lol:

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 20:58:44 / Buddurnar

Ammaeli Ammaeli Ammaeli!!!!!

:o:o:o Til ham med ammaelid Itta Spitta!!!!!:D:D:D:D

» 10 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 22:22:05 / Buddurnar

Ammaeli og Jol

Til hamingju med afamaelid Sigurbjorg og Brynja!!!! :lol::lol::lol: og Gledileg Jol!!!! Sakna ykkar allra.:haha:

Kossar fra Kanada!:o


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 14:18:20 / Osk

jólafærsla

Úff, það er búið að vera alltof langt síðan einhver okkar skrifaði svo ég ákvað að taka mig til.  Sérstaklega að því að ég kem ekki heim um jólin L Ég er nefnilega að fara til Ítalíu með allri fjölskyldinni minni og Ástu og Huldu frænkum mínum, við verðum þar um jólin og áramótin sem verður  voða nice, góð blanda af snjó, schnapps og pizzum.  Ég er að vonast til þess að komast heim í byrjun Mars, ég var að byrja á nýju verkefni í gær og ég klára það þá.  Við erum að gera nýja seríu sem heitir Heroes of Comedy, og ég er að vinna að þátt um Sacha Baron Cohen (gæjinn sem leikur Borat).  Þetta er ekkert smá skemmtilegt og verður svaka flottur og fyndin þáttur. Ég hef ekkert spennandi að segja fra, það er allt frekar rólegt hérna hjá okkur, reyndar eru öll jólapartýin að byrja, það er hjá vinnunni minni í kvöld, rosa skemmtilegt að hafa þetta á þriðjudagskvöldi...NOT.  Það verða ekki margir ferskir hérna í fyrramálið.En, já, bless í bili, endilega skrifið þið eitthvað fyrst að ég fæ ekki að sjá ykkur um jólin, koma svo. Ósk xxx

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 15:38:57 / Fanney

Tékkið á þessu!!!!

Fyndið mjög.........  http://youtube.com/watch?v=3V5zBXW1oP8

ps. Brynja hvenær er næsti leikur og hvenær ætlar þú/þið að koma í djammferð til mín???


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 23:06:14 / Alma Rut

Geimvera á jörðinni

Bíddu? sko? ha????
Var einhver líka að horfa á þáttinn um David Blaine á Skjá Einum áðan?
Maðurinn er náttúrulega geimvera!!!
Ef þið vitið ekkert hvað ég er að tala um þá verðiði að kíkja á þetta og svo bara horfa á öll videoin á síðunni hans. Það á náttúrulega bara að senda manninn í rannsókn...

 http://davidblaine.com/tv?bctid=1243534218


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 15:40:51 / Agnes

Hún átti afmæli í gær............

...........hún átti afmæli í gææææær........hún átti afmæli hún Fanneyyyyyyyy....hún átti afmæli í gæææææær....klapp klapp klapp klapp....

 Til hamingju með að vera ekki lengur ung:haha: Vonandi áttirðu góðan dag í gær með Baununum í Baunalandi.

Svona var hún fín!

 

Kossar og knús Agga,

P.s....takiði eftir klukkunni á myndinni........reyniði svo að giska á það hvort þetta er um kvöld .......eða morgun.


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 08:21:00 / Maja Eir

Reykjavík

Jæja skvísur nú ætla ég að leggja í hann eftir hádegi og verð vonandi komin í borg óttans um kvöldmatarleitið. Hvað segji þið á að djamma eitthvað með mér eða hvað? Partý hjá Gunna, Betu og Ásu í kvöld það verður örugglega rosa fjör.

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 15:18:32 / Agnes

Váááá...

.....hvað það er langt síðan ég hef skrifað eitthvað. Ég mundi varla notandanafnið mitt...þá er það nú orðið svart ha!

Langaði bara að kasta á ykkur kveðju, ætlaði norður þessa helgi en hætt við í bili.....kem við betra tækifæri. Annars hef ég því miður bara nákvæmlega EKKERT að segja...alla vega ekkert sem ég ætla að vera að blasta hér á blogginu. Get ekki beðið eftir að komast út til Köben yfir jólin...styttist óðum :haha: 

Uuuuuuuuuuuuu...grínlaust þá hefur mér aldrei liðið jafn leiðinlega eins og þessar 5 mín.sem ég er búin að sitja hérna og reyna að hugsa eitthvað skemmtilegt til að segja........vá hvað er ég búin að vera að gera?? Heyrðu oj ég er farin bara.......ætla að gera eitthvað af mér og skrifa svo aftur bara seinna....ó mæ :^)  jiiiii bless.

 Kv, Agga


» 12 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 11:00:16 / Alma Rut

Kastaði upp í beinni útsendingu

Æi greyið, það er nógu slæmt að vera bara með túrverki en:
Sænskur sjónvarpsþáttastjórnandi fær mesta áhorfið á YouTube um þessar mundir. Eva Nazemson var að stýra spurningaþætti í beinni á TV4 sjónvarpsstöðinni þegar hún kastaði skyndilega upp. Karlkyns þátttakandi hafði hringt inn og var að leysa orðaþraut þegar Eva sneri sér óvænt til hliðar og ældi.
Eva hvarf af skjánum í nokkrar sekúndur en sneri aftur og tók upp þráðinn eins og ekkert hefði í skorist. Hún útskýrði fyrir áhorfendum að hún væri á blæðingum og hefði svo mikla verki af þeim völdum: http://www.youtube.com/watch?v=kiiA0qH58wE


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 23:25:13 / Buddurnar

Björg

Sælar buddurnar mínar, hvað segið þið gott á þessum köldum september dögum.

Héðan frá Ak. er allt gott að frétta. Skólinn tekur alla orku frá mér þessa dagana, nóg að verkefnum að skila og er að undirbúa mig fyrir vettvangsnám numer tvö. Núna fer ég á Kristnes og mun vera þar næstu 6 vikurnar og er voðaleg spennt fyrir þessu. Gunnari gengur vel í skólanum og er farin að læra heima á fullu, það er voða fyndið að vera heima og hjálpa barninu sínu að læra, mér finnst stundum námið hans vera skemmtilegra en mitt ( lita og tengja hluti saman híhí;). Honum gengur nú samt ekki alveg jafnvel að muna eftir dótinu sínu, ég þekkist núna í skólanum sem mamman sem er að leita af öllu þar sem Gunnar hefur tekist að týna sundfötum sínum og handklæði, húfu, úlpu, pennaveski og skóm já þetta er satt hann sonur minn er búin að ná að týna þessu öllu og september er ekki liðinn, hann er stundum svo útanvið sig blessaður að ég má þakka fyrir að hann skili sér heim úr skólanum að degi loknum. En ég held i vonina að þetta muni koma hjá honum. Vona að ykkur líði öllum vel og gangi allt í haginn

Kveðja Bjögga;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 11:42:47 / Þórunn

Helgin

Gleðilegan föstudag mínar kæru :)

Vildi nú bara taka stemmarann fyrir helgina, er eitthvað plan hjá einhverjum? Míns er ein heima alla helgina svo ef einhvern langar að koma í mat/kaffi/hvítt eða bara eitthvað huggulegt til mín í kvöld eða bara hvenær sem er þá er það meget meget vilkommet :) Þetta boð er meira svona SKIPUN um að einhver komi í heimsókn til stúlkunnar - mætingarleysi varðar við hegningarlög nr. 1857965a, 5. gr. frá árinu 1785 - í þeim felast ýmsar refsingar sem ekki er unnt að hafa skriflegar hér. Fyrir áhugasama bendi ég á heimasíðu hæstaréttar : www.haestirettur.is/  - HLAKKA til að sjá ykkur 8)

 

Toodlelooo - Þórunn


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 21:24:37 / Fanney

HVER ER MAÐURINN!!!

Ég hef ákveðið að hrinda af stað hinum skemmtilega leik Hver er maðurinn (konan)?? þið þekkið hann jú allar er það ekki?? Ef ekki þá virkar hann þannig að ég set inn mynd hér fyrir neðan af einhverjum sem allavega 2 af okkur buddunum verða að þekkja og þið eigið að giska hver það er... geta verið gamlar sem nýjar myndir...Gjörið svo vel.....einn,tveir og GISKA!!!!!!

Hilsen frá Kaupamannahöfn!!

ps. Hvenær ætliði buddur að heimsækja mig eignlega ha.....kannski bara ALDREI eða?!?!


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 20:19:09 / Maja Eir

Fréttir eða ekki fréttir ;)

Jæja stúlkur, af mér og minni familý er allt gott að frétta, en samt ekkert að frétta hehehe. Ég er að vinna í skólanum til tvö á daginn og sæki svo strákana mína í leikskólan (Skírni Frey) og til tendó (Fjölnir). Skírnir er að klára rannsóknarverkefnið sitt í Háskólanum núna 25. sept. og þá er spurning hvað tekur við. Við vitum ekkert hvert leiðin liggur í framhaldi af þessu verkefni þannig að það er spennandi þegar það verður komið í ljós enda ekki fyrir mig að vera í lausu lofti (vil bara hafa þetta svart á hvítu).

Við Björg erum búnar að vera svolítið duglegar að fara í rækina tvisvar í viku og svo ætla ég náttúrulega alltaf að vera dugleg að borða BARA holt en það er ekki alveg að ganga upp alltaf. Það er svo gott að borða gott ;)

Það var rosalega gaman hjá okkur í bústaðinum. Við gerðum ekki annað en að borða, drekka, sofa og slaka á í pottinum og það var alveg magnað. Ég er ekki að grínast en ég held að ég hafi borðað og drukkið á mig 1 og 1/2 kíló þessa helgi hahaha úff. En svo fórum við Björg í rætina til að friða samviskuna vikuna á eftir. Er alveg til í svona dekur aftur þetta var svo gaman.

 Jæja stúlkur koma svo og skrifa

Kossar og knús


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 46
Dagatal